segunda-feira, 29 de dezembro de 2014

HECHOS DE LOS APOSTOLES PELICULA COMPLETA

 Espanhol    Evangelio de San Juan
Espanhol

HECHOS DE LOS APOSTOLES PELICULA ... - YouTube

www.youtube.com/watch?v=-TKygK8e3zk
Jun 15, 2012 - Uploaded by Anibal Vila
This video is unavailable. You need Adobe Flash Player to watchthis video. Download it from Adobe. Watch ...



 português

Filme Bíblico Completo - Atos dos Apóstolos-3 horas de Raridade


  1. Filme Bíblico Completo - Atos dos Apóstolos-3 ... - YouTube

    www.youtube.com/watch?v=-qJb9Jr19_s
    Jan 18, 2013 - Uploaded by palavrasccb1910
    This video is unavailable. You need Adobe Flash Player to watchthis video. Download it from Adobe. Watch ...
Postulasagan 1
1Fyrri sögu mína, Þeófílus, samdi ég um allt sem Jesús gerði og kenndi frá upphafi, 2allt til þess dags er hann varð upp numinn. Áður hafði hann gefið postulunum, sem hann hafði valið með heilögum anda, fyrirmæli sín. 3Hann birtist þeim eftir dauða sinn og sýndi þeim með órækum sönnunum að hann lifði. Hann lét þá sjá sig í fjörutíu daga og talaði um Guðs ríki. 4Er Jesús neytti matar með þeim bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem heldur bíða eftir því sem faðirinn gaf fyrirheit um „og þér hafið heyrt mig tala um. 5Því að Jóhannes skírði með vatni en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda, nú innan fárra daga.“ 

Upp numinn
6Meðan þeir voru saman spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlar þú á þessum tíma að endurreisa ríkið handa Ísrael?“
7Hann svaraði: „Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir sem faðirinn hefur sjálfur ákveðið. 8En þér munuð öðlast kraft er heilagur andi kemur yfir yður og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar.“ 9Þegar hann hafði mælt þetta varð hann upp numinn að þeim ásjáandi og ský huldi hann sjónum þeirra.
10Er þeir störðu til himins á eftir honum þegar hann hvarf, þá stóðu hjá þeim allt í einu tveir menn í hvítum klæðum 11og sögðu: „Galíleumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem varð upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.“ 


Postuli valinn
12Þá sneru þeir aftur til Jerúsalem frá Olíufjallinu, sem svo er nefnt og er í nánd við Jerúsalem, hvíldardagsleið þaðan. 13Er þeir komu þangað fóru þeir upp í loftstofuna þar sem þeir dvöldust: Það voru þeir Pétur og Jóhannes, Jakob og Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon vandlætari og Júdas Jakobsson. 14Konurnar voru einnig með þeim og María móðir Jesú og bræður hans. Öll voru þau með einum huga stöðug í bæninni.
15Á þessum dögum stóð Pétur upp meðal lærisveinanna. Þar var saman kominn flokkur manna, um eitt hundrað og tuttugu að tölu. Hann mælti: 16„Systkin, [1]

rætast hlaut það sem heilagur andi sagði fyrir munn Davíðs í Heilagri ritningu um Júdas sem vísaði leið þeim er tóku Jesú höndum. 17Hann var í okkar hópi og honum var falin sama þjónusta. 18Hann keypti landspildu fyrir launin sem hann fékk fyrir ódæði sitt, steyptist á höfuðið og brast sundur í miðju svo að iðrin öll lágu úti. 19Þetta varð kunnugt öllum Jerúsalembúum og er spilda sú kölluð Akeldamak á tungu þeirra, það er Blóðreitur. 20Ritað er í Sálmunum:
Bústaður hans skal í eyði verða,
enginn skal í honum búa, 

og:
Annar taki embætti hans. 
21Einhver þeirra manna sem með okkur voru alla tíð meðan Drottinn Jesús gekk inn og út á meðal okkar, 22allt frá skírn Jóhannesar til þess dags er hann varð upp numinn frá okkur, verður nú að gerast vottur upprisu hans ásamt okkur.“
23Menn völdu tvo, Jósef, kallaðan Barsabbas, öðru nafni Jústus, og Matthías, 24báðust fyrir og sögðu: „Drottinn, þú sem þekkir hjörtu allra. Sýn þú hvorn þessara þú hefur valið 25til að taka við þessari þjónustu og postuladómi sem Júdas vék frá til að fara til síns eigin staðar.“ 26Þeir hlutuðu um þá og kom upp hlutur Matthíasar. Var hann tekinn í tölu postulanna með þeim ellefu. 


1.1 Frá upphafi Lúk 3.23; Post 10.37 1.2 Fyrirmæli ... Jesús upp numinn Mrk 16.19; Lúk 24.49-51 1.3 Birtist og sýndi að hann lifði Lúk 24.36-42; Jóh 20.19-20,26-27 – fjörutíu dagar 2Mós 24.18; 4Mós 13.25; 5Mós 9.18; 1Kon 19.8; Jóh 3.4; Lúk 4.2 og hlst. – hinn upprisni kennir Matt 28.18-20; Lúk 24.46-49; Jóh 20.21-23 – um Guðs ríki Lúk 4.43; 8.11; 9.2,11,60; 16.16; Post 8.12; 14.22; 19.8; 20.25; 28.23,31 1.4 Fyrirheit föðurins Lúk 24.49 – Jesús boðar Jóh 14.16-17; 15.26; Post 2.33 1.5 Skírn með vatni, skírn með heilögum anda Lúk 3.16 og hlst.; Jóh 1.33; Post 2.38+ ; 8.15-17; 9.17-18; 10.44-48; 19.5-6 1.6 Endurreisn Ísraels Am 9.11-12; Sír 36.1-17; Mrk 9.12; Lúk 19.11; 24.21 1.7 Ekki yðar að vita Mrk 13.32 – tíma eða tíðir Post 3.20-21; 7.17; 17.26,30 1.8 Kraftur heilags anda Ef 3.16 – sbr Post 4.8,31; 6.10; 8.29,40; 10.19,44-47; 16.6-7; 19.6; 20.22-23 – vottar Lúk 24.48; Jóh 15.27; Post 1.22; 2.32; 3.15; 4.33; 5.32; 8.25; 10.39-40; 13.31; 18.5; 20.24; 22.15,18,20; 23.11; 26.16,22; 28.23 1.9 Upp numinn Mrk 16.19; Jóh 6.62 – ský 2Mós 13.21-22; Dan 7.13; Matt 17.5+ ; 24.30+ og hlst.; Mrk 14.62 1.10 Tveir menn Lúk 24.4 1.11 Kemur á sama hátt Matt 24.30+ ; Lúk 21.27; Post 1.7 1.12 Frá Olíufjallinu til Jerúsalem Lúk 24.50,52; sbr Mrk 11.1+ 1.13 Hinir ellefu Matt 10.2+ 1.14 Bræður Drottins Matt 12.46+ ; 1Kor 9.5 1.15 Lærisveinarnir Post 11.1; 12.17; 14.2; 21.17-18

1.16 Rætast hlaut ritningin Slm 41.9 1.18 Dauði Júdasar Matt 27.3-8 1.20 Bústaður hans Slm 69.26 – annar taki ... Slm 109.8 1.21 Með okkur voru Lúk 1.2; Jóh 15.27 1.22 Allt frá skírn (Jesú) Lúk 3.21 og hlst. – varð upp numinn Mrk 16.19; Post 1.9 – vottur Post 1.8+


http://biblian.is/Biblian/


 Islandês

_________________________________________________

www.google.com.br



biblian.fo

biblian.is



Fyrsta Mósebók 1

Sköpunarsagan
1Í upphafi skapaði Guð himin og jörð. 2Jörðin var þá auð og tóm. Myrkur grúfði yfir djúpinu en andi Guðs sveif yfir vötnunum.
3Þá sagði Guð: „Verði ljós.“
Og það varð ljós.
4Guð sá að ljósið var gott og Guð greindi ljósið frá myrkrinu. 5Guð nefndi ljósið dag en myrkrið nótt.
Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fyrsti dagur.
6Þá sagði Guð: „Verði festing milli vatnanna og hún greini vötn frá vötnum.“
7Þá gerði Guð festinguna. Skildi hún milli vatnanna sem voru undir festingunni og vatnanna sem voru yfir festingunni. Og það varð svo.
8Og Guð nefndi festinguna himin. [1]

Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn annar dagur.
9Þá sagði Guð: „Vötnin undir himninum safnist saman í einn stað og þurrlendið komi í ljós.“ Og það varð svo.
10Guð nefndi þurrlendið jörð og safn vatnanna nefndi hann haf. Og Guð sá að það var gott.
11Þá sagði Guð: „Jörðin láti gróður af sér spretta, sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum jarðar sem bera ávöxt með sæði.“ Og það varð svo.
12Jörðin lét gróður af sér spretta, alls kyns sáðjurtir og aldintré af öllum tegundum sem bera ávöxt með fræi.
Og Guð sá að það var gott.
13Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn þriðji dagur.
14Þá sagði Guð: „Verði ljós á hvelfingu himins til þess að greina dag frá nóttu. Þau skulu vera tákn til þess að marka tíðir, daga og ár 15og þau skulu vera ljósgjafar á festingu himins til þess að bera jörðinni birtu.“ Og það varð svo.
16Guð gerði tvö stóru ljósin, stærra ljósið til að ráða degi og minna ljósið til að ráða nóttu, og einnig stjörnurnar. 17Og Guð setti þau á festingu himinsins til þess að bera jörðinni birtu 18og ráða degi og nóttu og til að greina ljós frá myrkri. Og Guð sá að það var gott.
19Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fjórði dagur.
20Þá sagði Guð: „Vötnin verði kvik af lífverum og fuglar fljúgi yfir jörðinni undir hvelfingu himins.“
21Og Guð skapaði hin stóru sjávardýr og alls kyns skepnur, sem lifa og hrærast og vötnin eru kvik af, og alla fleyga fugla eftir þeirra tegundum.
Og Guð sá að það var gott.
22Guð blessaði þau og sagði: „Frjóvgist og fjölgið ykkur og fyllið vötn sjávarins og fuglum fjölgi á jörðinni.“
23Það varð kvöld og það varð morgunn, hinn fimmti dagur.
24Þá sagði Guð: „Jörðin leiði fram lifandi skepnur, hverja eftir sinni tegund, búfé, skriðdýr og villidýr, hvert eftir sinni tegund.“ Og það varð svo.
25Guð gerði villidýrin, hvert eftir sinni tegund, búfé eftir sinni tegund og hvers konar skriðdýr jarðarinnar eftir sinni tegund. Og Guð sá að það var gott.
26Þá sagði Guð: „Vér viljum gera manninn eftir vorri mynd, líkan oss. Hann skal drottna yfir fiskum sjávarins, fuglum loftsins, búfénu, villidýrunum og allri jörðinni og öllum skriðdýrum sem skríða á jörðinni.“
27Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd. Hann skapaði hann eftir Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu.
28Guð blessaði þau. Og Guð sagði við þau: „Verið frjósöm, fjölgið ykkur og fyllið jörðina, gerið ykkur hana undirgefna og ríkið yfir fiskum sjávarins og fuglum himinsins og öllum dýrum sem hrærast á jörðinni.“
29Og Guð sagði: „Nú gef ég ykkur allar sáðjurtir jarðarinnar og öll aldintré sem bera ávöxt með fræi. Þau skulu vera ykkur til fæðu. 30Og öllum dýrum jarðarinnar, öllum fuglum himinsins, öllum skriðdýrum jarðarinnar, öllu sem hefur lífsanda í sér, gef ég öll grös og jurtir til fæðu.“ Og það varð svo.
31Og Guð leit allt sem hann hafði gert, og sjá, það var harla gott.
Og það varð kvöld og það varð morgunn, hinn sjötti dagur.



1.1 Sköpunin 1Mós 2.4-25; Jes 42.5; Slm 8; 89.10-13; 104.; Job 26.7-14; 38-39; Sír 16.26-17.10 – er verk Guðs 1Mós 1.21,27; 2.3-4; 5.1-2; .7; 5Mós 4.32; Mkr 13.19; Ef 3.9; Opb 4.11; 10.6, sbr 2Makk 7.28 – hann skapar með orði sínu Slm 33.9; Jóh 1.3; Heb 11.3; sbr Jer 10.10.12; Okv 8.22-31 1.3 Ljós Slm 27.1+ ; 104.2

1.5 Ljós og myrkur Jes 45.7; 60.19; 2Kor 4.6; Opb 22.5 1.7 Festingin Esk 1.22-25; 2Pét 3.5 1.9 Vötnin safnist saman Job 26.8-10; 38.8 1.14 Ljós á hvelfingu himins Jes 40.26; Jer 31.35; Bar 3.33-35 1.16 Stóru ljósin tvö Slm 104.19; 136.7-9; Sír 43.1-10 1.25 Villidýrin Slm 50.10-11 1.27 Eftir Guðs mynd 1Mós 9.6; SSal 2.23; Sír 17.3; 1Kor 11.7; Kól 3.10; Jak 3.9 – karl og kona 1Mós 5.2; Matt 19.4; og hlst.; sbr Gal 3.28

1.28 Guð blessaði þau 1Mós 9.1; sbr 1.22 – verið frjósöm, fjölgið ykkur 1Mós 8.17; 9.1,7; sbr 1.22 – ríkið 1Mós 9.2; Slm 8.7-9; SSal 9.2; 10.2; Jak 3.7 1.31 Það var harla gott Slm 104.24; Sír 39.3-35; 1Tím 4.4
______________________________________________________________________
WWW.BIBLE.COM
Joel
123

Capítulo 1      Ir a elegir capítulo

Devastación causada por la langosta

Nenhum comentário:

Postar um comentário